Fv. þingmaður segir ásmund fávita

\"Ég nenni ekki að tipla á tánum í kringum svona. Þessi maður er fáviti.\"

Svo tjáir Margrét Tryggvadóttir, fyrrum þingkona sig á facebook, þar sem hún póstar frétt þar sem vitnað er til þeirra orða Ásmunds Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að best væri ef hægt væri að snúa hælisleitendum við strax í Keflavík og flytja það aftur burt þaðan.

Ásmundur lét þessi orð falla undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í dag. Hann segist ekki óttast viðbrögð \"góða fólksins\" og fordæmingu fjölmiðla, hann veigri sér ekki við því að taka þessa umræðu. Skoða verði lokun landamæra Íslands og vitnar Ásmundur þar til vandamála í nágrannaríkjum.

Margrét Tryggvadóttir er ekki sú eina sem hefur brugðist við ummælum Ásmundar. Hrafn Arnarson, pistlahöfundur á Kjarnanum, kallar Ásmund rasista og spyr hvort það flokkist nokkuð undir meiðyrði að segja það opinberlega sem augljóst sé.

Allmargir samflokksmenn Ásmundar í Sjálfstæðisflokknum hafa fordæmt ummæli Ásmundar, þar á meðal Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík.

Ungir sjálfstæðismenn hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

\"Þetta er vond skoðun hjá Ásmundi og hlýtur fyrst og fremst að lýsa skilningsleysi hans á ástandinu í Sýrlandi. Að leggja til að menn verði sendir aftur á stríðshrjáð svæði er auðvitað ótrúlegt og ekki sæmandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Við fordæmum auðvitað þessi orð Ásmundar og minnum hann á stefnu Sjálfstæðisflokksins um þessi mál sem samþykkt var á landsfundi flokksins 2015:
„Hafa skal mannúðarsjónarmið og skilvirkni að leiðarljósi í málefnum hælisleitenda. Móttaka flóttamanna er sjálfsögð. Sjálfstæðisflokkurinn fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að auka fjármagn til flóttamannaaðstoðar í kjölfar neyðar sem skapast hefur í Evrópu undanfarin misseri.“\"