Reinhard Reynisson, fyrrum bæjarstjóri á Húsavík, hefur sent Mílu bréf þar sem hann kvartar undan slæmu netsambandi í Norðurþingi.
Í svörum Mílu kemur fram að vænta megi betrumbóta en þó ekki fyrr en næsta ár.
Margir minnast áramótamávarps Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra þar sem hann ræddi ljósleiðaravæðingu um allt land. Bendir Reinhard á það á eigin fésbókarsíðu að augljóslega verði dráttur á þjónustunni frá því sem kynnt hafði verið.
Þannig var fyrirspurn Reinhards:
„Þið verðið að fyrirgefa en það er ekki hægt að orða spurninguna öðruvísi en svona: Hvenær í andsk... ætlar fyrirtækið að koma á nothæfu netsambandi á Húsavík, verandi með ljósleiðara í alla götuskápa síðan fyrir síðustu aldamót?\"
Í svari Mílu segir að á áætlun sé að „fara í frekari Ljósveituvæðingu á Húsavík á næsta ári, 2016.\"
„ÞETTA ER EKKI Í LAGI!“ Segir bæjarstjórinn fyrrverandi. Þreyttur á lélegu netsambandi.