Furðusögur af aksturslagi útlendinga

Það er líkast því að þeir séu margir hverjir ekki læsir á tölur og fyrir vikið virða þeir að vettugi hraðatakmarkanir eða leiðbeiningar um varúð á vegum sem verið er að laga og endurgera. En þess utan leggja þeir bílnum bara hvar sem er.

Svona lýsir einn rútubílstjóra á Suðurlandi ástandinu á þjóðvegum landsins eftir að erlendum ferðamönnum undir stýri misjafnlega búinna bifreiða stórfjölgaði hér á landi. Hann sagði það oft og tíðum kúnstugt að fylgjast með aksturslagi þessara ágætu gesta sem margir hverjir virðist ekki hafa mikla reynslu af akstri utan þéttbýlis, hvað þá í óbyggðum - og svo tók hann nokkur dæmi:

Hægakstur skimandi ökumanna eftir vegamerkingum tefur hvað eftir annað umferð.

Iðulega stöðva ferðamenn bíl sinn á miðjum vegi, án viðvörunarljósa, til að grandskoða vegakort sín.

Afreinar, fyrir bíla til að taka fram úr þeim sem ætla að beygja, eru mjög gjarnan notaðar sem tímabundið bílastæði.

Oft eru þessar afreinar notaðar til að taka U-beygju, óháð því hvort bílar í grennd ætli að taka þar fram úr.

Sömu afreinar eru notaðar til að hægja á biðfreiðinni áður en sveigt er yfir á þverveg - og þar með yfir auða akgrein.

Akbrautir þvert á þjóðveginn eru einatt notaðar sem bílastæði á meðan ljósmyndarar vappa um nágrennið. 

Nokkur dæmi eru þess að ferðamenn aki á röngum vegarhelmingi, væntanlega vanir slíku heiman frá sér.

Alloft sjást bílar stöðva uppi á hæðum, jafnvel blindhæðum, á meðan ljósmyndir eru teknar yfir svæðið. 

Álíka oft er bílum lagt tímabundið á brúm svo farþegi geti skotist út til að taka mynd af ánni.

Tíður ofsaakstur veldur hættu við einbreiðar brýr þar sem ökumenn nauðhemla í vegkanti.

Rútubílstjórinn sem hér er vitnað til kveðst ekki vera einn þessarar skoðunar á aksturslagi margra útlendinga sem sækja Ísland heim um þessar mundir. Kollegar hans hafi flestir, ef ekki allir, sömu sögu að segja - og þótt alls ekki megi alhæfa í þessa veru um alla útlenda ökumenn á þjóðvegum landsins sé vissara að fara með gát í umferðinni úti á landi á meðan háönn ferðaþjónustunnar standi yfir.