Furðumál sdg enn á dagskrá

Furðumál eru enn á málaskrá ríkisstjórnarinnar s.s. mál frá Sigmundi Davíð um að hann friði sjálfur hús. Þá vanti enn frumvarp um aðgerðir gegn skattaskjólum.

Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG í umræðu á Hringbraut í morgun í sjónvarps- og útvarpsþættinum Þjóðbraut, sem Sigurjón M. Egilsson þáttastýrir. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hjólaði bratt í frumvarp Eyglóar Harðardóttur um húsaleigubætur. Ekki dygði fyrir fólk á amlennum markaði með meðaltekjur að almannafé þyrfti til að hjálpa því að eignast húsnæði.

Þá var Búvörusamningur til umræðu, tollaafnám og fleira og sagði Ragnheiður að eflaust væru ekki allir sammála innan Sjálfstæðisflokksins um leiðir.

Þátturinn er endursýndur kl.11.30 í útvarpi og sjónvarpi Hringbrautar.

Smellið hér til að hlusta á útvarp Hringbrautar FM89,1.