Furðulega röggsamur oddviti

Theresa May forsætisráherra Stóra-Bretlands og leiðtogi Íhaldslfokksins hefur laust en traust taumhald á landsstjórn og á flokknum. Hún er þegar öllu er á botninn hvolft furðulega röggsamur leiðtogi. Theresa May er að margra mati frábær og býr yfir óbilandi atorku og sjálfstrausti. Og er ekki á förum úr Downing stræti númer tíu.

Breskir ljósvakamiðalar hafa í dag keppst sín á milli við að kynna stöðu mála og spá í pólitíkina. Sitt sýnist hverjum um stöðu Theresa May sem forsætisráðherra íhaldsstjórnar og sem leiðtoga Íhaldsflokksins.

Flestir telja víst á Theresa May skipti um ráðherra. En þetta er dægradvöl breskra ljósvakamiðla og rétt að taka með fyrirvar því sem þar er staðhæft.

Það er heldur ekki auðvelt að festa hendur á öll sérkenni breska stjórnmála og því síður að skilja þau; hvað þá völundarhús bresks þjóðlífs. Þetta mun hverju orði sannara.

Bretar stefn ótrauðir í átt að því marki að verða ESB utanborðsríki. Þjösnaleg framkoma ESB ásamt vonbrigðum yfir slælegu atfylgi ESB þjóða í Brussel við breska hagsmuni veldur gremju af versta tagi meðal þorra Breta.    

Theresa May forsætisráðherra Stóra-Bretlands hefur ráð undir rifi hverju. Ný ráðherralisti sýnir það eftir nokkra daga. Þetta staðhæfa Bretar í ábyrgðarstöðum.

Brexit rennur út í sandinn því ekkert samkomulag næst við ESB um útgöngu Breta.

En Bretar kveðja ESB Evrópu kátir og reifir. Svo mikið er víst. Og gefa fornum fjendum langt nef; helst Frökkum og Þjóðverjum.

Hvað tekur við veit enginn. Ekki einu sinni Bretar sem þó þykjast vita og kunna og þekkja hvaðeina.

Frábær og óbilandi atorka \"reddar\" Bretum eins og og svo oft áður.

Það er mesti styrkur Bretar 

[email protected]