Funheitur spuni hjá karli ágústi

Það var rætt um brjóst og geirvörtur og allt annað sem bar hvað hæst í þjóðlífi landsmanna í þætti Karls Ágústs Úlfssonar, Helginni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld. Gestir voru sem fyrr ekki af lakari endanum, söngvaskáldið Svavar Knútur og leikkonan og ritstjórinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, en óhætt er að segja að þau hafi margt og mikið til málanna að leggja þegar rýnt er í atburði vikunnar.


Ekki má gleyma vinsælum inngangsorðum Karls Ágústs sjálfs sem jafnan fer á kostum í hæversku gríni sínu í byrjun þáttar þar sem menn og málefni fá gúmoren frá leikaranum góðkunna.


Helgin er sem fyrr frumsýnd klukkan 21.00 á Hringbraut í kvöld. Hægt er að skoða klippur úr þættinum hér neðar á forsíðunni á hringbraut.is.