Fundust kaldir uppi á fláajökli

Tveir erlendir ferðamenn sem komust í sjáldfheldu í klettum við Fláajökul á Mýrum eru komnir til byggða. kaldir en heilir á húfi, en þeirra hafi verið leitað í nokkra tíma í gærkvöld.
 
Björgunarsveitarmenn úr Björgunarfélagi Hornafjarðar komu niður á jafnsléttu með seinni göngumanninn rétt fyrir miðnætti, en hann sat fastur á klettsyllu í um 300 metra hæð. Níu björgunarmenn fóru á vettvang um hálfníu á sunnudagskvöld.
 
Að því er fram kemur á fréttavef RÚV gekk greiðlega að komast að fyrri manninum og hjálpa honum niður á jafnsléttu. Aðgengi var öllu erfiðara að hinum manninum. Á endanum klifu þrír björgunarsveitarmenn enn ofar í klettabeltið og fikruðu sig svo til hliðar uns þeir voru nokkurnveginn fyrir ofan hann. Einn björgunarmanna seig síðan niður til ferðalangsins og tókst að koma á hann sigbelti og línu, sem gerði mögulegt að kippa honum yfir á betri stað, þaðan sem hann gat sjálfur fikrað sig niður í fylgd björgunarmanna.

 

Tvímenningarnir voru orðnir nokkuð blautir og hraktir en að öðru leyti hinir sprækustu, að sögn Jónasar Friðrikssonar hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar sem RÚV ræðir við í frétt sinni. Þeir munu hafa verið á göngu en vikið út af gönguslóða og prílað upp í klettana til að sjá betur yfir jökulinn. Þeim dvaldist hins vegar of lengi í klettunum og birtu var tekið að bregða þegar þeir ætluðu niður aftur.