Yfir áttatíu taka þátt í Fundi fólksins á morgun og laugardag, félagasamtök, stjórnmálaflokkar, stofnanir og fyrirtæki taka þátt og eru rúmlega tvölfalt fleiri þátttakendur nú í ár en í fyrra. Nokkur hundruð manns taka beinan þátt með einum eða öðrum hætti.
Fundur Fólksins er tveggja daga lýðræðis- og stjórnmálahátíð í Norræna húsinu og á lóðinni í kringum húsið. Slegið verður upp tjaldbúðum þar sem hin ýmsu félagasamtök, stjórnmálaflokkar, stofnanir og fyrirtæki verða með starfsemi og þjóðþekktir einstaklingar stjórna umræðum. Ingibjörg Gréta Gísladóttir, verkefnastjóri fundarins kíkir á Hringbraut í kvöld og skýrir betur frá þessu fundarfyrirbæri.
En það er í anda samskonar funda á hinum Norðurlöndunum s.s. Almedalsveckan á Gotlandi í Svíþjóð, Folkemødet á Bornholm í Danmörku og Arendalsuka í Noregi. En þessar hátíðir standa í heila viku.
Markmiðið er að auka tiltrú á stjórnmálum og styrkja uppbyggjandi pólitíska umræðu með aukinni þátttöku og skoðanaskiptum.
Aðstandendur er breiður hópur félagasamtaka sem tóku einnig þátt í undirbúningi og framkvæmd fundarins í fyrra.