Fram kemur á vefnum ruv.is að foreldrar drengsins fóru í um 20 mínútna göngutúr í Nauthúsagili. Drengurinn varð eftir í bílnum, sofandi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.
Þegar fólkið kom til baka var drengurinn ekki í bílnum og hvergi sjáanlegur. Fólkið leitaði aðstoðar annars pars sem einnig var á göngu um svæðið. Það tók fúslega þátt í leitinni, keyrði af stað og kom fljótlega auga á drenginn. Hann var þá talsverðan spöl frá bílnum í móanum neðan við veginn. Þau komu honum heilum á húfi aftur í faðm feginnar fjölskyldu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni skapast alltaf hættulegar aðstæður þegar lítil börn týnast. Þótt áin, sem fellur úr Nauthúsagili, sé ekki vatnsmikil getur barn hæglega farið sér þar að voða. Drengurinn týndist auk þess nálægt Markarfljóti, á leiðinni inn í Þórsmörk. Því er mikil mildi að ekki fór verr eins og fram kemur á vefnum.