Fundu landnámsskála af stærstu gerð

Forn­leifa­fræðing­ar hafa grafið niður á minnst 20 metra lang­an skála frá land­náms­öld við Lækj­ar­götu í miðbæ Reykja­vík­ur, en hann hefur að geyma einn lengsta landeld sem fundist hefur hér á landi.

Er skál­inn um 5,5 metr­ar á breidd þar sem hann er breiðast­ur og inni í hon­um miðjum hef­ur sem fyrr segir verið einn stærsti lang­eld­ur sem fund­ist hef­ur á Íslandi, en sjá­an­leg um­merki sýna að hann hef­ur verið minnst 5,20 metr­ar á lengd. Er skáli þessi stærri en sá sem fannst á sín­um tíma við Aðalstræti, að því er fram kem­ur í máli og mynd­um í um­fjöll­un um forn­leifa­fund þenn­an í Morg­un­blaðinu í dag.

„Þessi fund­ur hef­ur komið okk­ur öll­um mjög á óvart og er eig­in­lega end­ur­rit­un á sögu Reykja­vík­ur,“ seg­ir Þor­steinn Bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Minja­vernd­ar við blaðið og segir landnámsskálann í Aðallstræti hjóm eitt miðað við skálann sem fundist hefur í Lækjargötu.

Uppgröfturinn er á lóð við hlið gamla Íslandsbankahússins í Lækjargötu en þar á að reisa hótel í framtíðinni.