Búist er við því að fundir Alþingis verði út júnímánuð og hugsanlega nokkra daga fram í júlí sem er harla óvenjulegt, enda er þingstörfum vanalega lokið síðla maímánuðar ef mið er tekið af hefðbundinni dagskrá löggjafasamkundunnar.
Ástæðu þessa má að meginhluta rekja til viðvarandi ósamkomulags á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um þingmál og framlagningu þeirra en þar saka hvorir aðra um óbilgirni og átakastjórnmál. Hatrömm umræða um breytingar á rammaáætlun hefur tekið lengstan tíma af einstökum þingmálum vorþingsins og virðist ekkert samkomulag í sjónmáli um að leggja það mál til hliðar svo afgreiða megi þann fjölda frumvarpa stjórnvalda sem enn hefur ekki verið mælt fyrir. Þau eru talin í tugum.
Þá bætir heldur ekki úr skák að aðeins næst að funda tvo daga í nýbyrjaðri viku, en daginn eftir þjóðarhátíðardaginn þarf að undirbúa þingsalinn undir hátíðarfund þann 19. júní þegar þess verður minnst að 100 ár eru liðin frá því konur fengu kosningarétt. Eftir það eru aðeins sjö virkir dagar til stefnu áður en júlímánuður hefst, svo líkur á hásumarþingi fara vaxandi.