Fundaði með julian assange á kvennaklósettinu

„Það liggur núna fyrir að Ekvadorar, eftir að Lenín Moreno tók við embætti, réðu nýtt öryggisfyrirtæki inn í sendiráðið og það var greinilega dagsskipun um að safna gögnum um allt og ekkert sem viðkom Julian Assange. El Pais á Spáni var í gær hreinlega að birta frétt um að samkvæmt þeirra heimildum var þeim fyrirskipað setja inn míkrafóna, meðal annars inn á kvennaklósettið í sendiráðinu, sem var eiginlega eitt af fáum athvörfum sem Julian gat haft til að eiga prívat fundi, meðal annars á milli mín og hans. En það var ekkert prívat orðið eftir þarna. Það kemur á daginn smám saman, betur og betur, að þetta var samkvæmt fyrirskipun frá stjórnvöldum Ekvador um að safna þessum gögnum, hreinlega njósna um flóttamanninn sem fékk hæli, sem núna var orðinn fangi. Þeir beittu hann síðan alls kyns harðræði á síðustu mánuðunum í sendiráðinu, vildu reyna að flæma hann út.“

Þetta segir Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, í ítarlegu viðtali við Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann málefni Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, sem var dreginn út úr sendiráði Ekvador í Lundúnum fyrir rúmum mánuði og handtekinn. Þann 1. maí var hann svo dæmdur í 50 vikna fangelsi fyrir að brjóta gegn skilyrðum og svíkjast undan tryggingu.

Framsalskrafa frá bæði Bandaríkjunum og Svíþjóð

Bæði Svíþjóð og Bandaríkin hafa sett fram framsalskröfu og bráðum munu fara fram málaferli í Bretlandi. „Endalaus málaferli á öllum póstum. Nú þurfa Bretar að ákveða hvort þeir ætli að taka fram fyrir framsalskröfu frá Svíþjóð eða framsalskröfu frá Bandaríkjunum, það er pólitísk ákvörðun. Málið er pólitískt á öllum sviðum. Ég var að endurlesa Dreyfusar-málið frá því fyrir hundrað árum síðan. Mál Julian Assange er Dreyfusar-mál okkar daga og það er skammarlegt. Þegar kemur til framtíðar munum við horfa til baka og fyllast óbeit á því hvernig farið hefur verið fram í þessu máli,“ segir Kristinn.

Ímyndin tilbúningur fjölmiðla

Assange hefur löngum þótt sérstakur og sérvitur og þar með alls ekki allra, því hafa ekki allir haft samúð með honum. Kristinn segir hann vissulega sérstakan en að hann hafi líklega aldrei haft betri yfirmann. „Ég þekki manninn persónulega og hann er sérstakur, að sjálfsögðu. Ég var nú spurður að því í viðtali hjá Spiegel um daginn hvernig okkar samskipti hefðu gengið. Ég sagði að ég er nú búinn að eiga dálítið brokkótt samskipti við yfirmenn mína í gegnum tíðina, eins og menn þekkja kannski hérna innanlands. Okkar samskipti, hann hefur verið eiginlega besti yfirmaður sem ég hef haft,“ segir hann og bætir við að sú ímynd sem sé dregin upp af Assange sé ekki í neinu samræmi við veruleikann og sé tilbúningur fjölmiðla.

Heimsótti Assange í fangelsið ásamt Pamelu Anderson

Kristinn fór ásamt Pamelu Anderson að heimsækja Assange í Belmarsh öryggisfangelsið í Lundúnum, þar sem hann dvelur nú. Þau tvö voru þau fyrstu sem fyrir utan lögfræðinga máttu heimsækja hann þangað.

Kristinn segir aðstæður Assange slæmar. „Hann hefur horast. Honum er að sjálfsögðu brugðið yfir þessari stöðu. Það er erfitt að eiga við þetta, það er erfitt að fara í öryggisfangelsi. Það er ekkert fangelsi sem er einfalt en þetta er nú með þeim verri, þetta fangelsi. En hann kemur líka úr sjö ára einangrun úr sendiráði þar sem hann fór ekki undir bert loft. Það sem fer verst með hann, sérstaklega af því hann er þessi karakter sem hann er, er þessi takmarkaða geta hans til þess að nálgast upplýsingar og taka þátt í og fá vitneskju um það sem er að gerast. Hann er einangraður. Hann fær náttúrulega einhverjar upplýsingar. Ég veit ekki einu sinni hvenær og hvort hann sé búinn að fá upplýsingar um það sem gerðist í gær, það er þessi tilkynning um að það sé búið að enduropna málið hans[í Svíþjóð],“ segir Kristinn.

Um hvernig það kom til að Pamela Anderson hafi slegist í för með honum segir Kristinn: „Pamela er baráttumanneskja, aktívisti, og er búin að vera það í mörg ár. Hún hefur heimsótt Julian mikið í sendiráðið, hefur verið stuðningsmaður WikiLeaks og Julians og vildi leggja sitt af mörkum. Á fyrsta degi þar sem heimsóknir voru leyfðar fyrir utan lögfræðinga, eftir mánuð, þá vildi hún kannski reyna að sýna stuðning sinn og koma með eitthvað jákvætt inn í þetta ömurlega fangelsi. Pamela Anderson er ekki ókunnug baráttu fyrir hagsmunamálum fanga, hún hefur gert það áður.“

Nánar er rætt við Kristinn í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.