Fundur verður á vegum Dögunar stjórnmálasamtaka og Stjórnarskrárfélagsins um frumvarpsdrög stjórnarskrárnefndar í Norræna Húsinu í kvöld kl 20:00. Á þjóðin að samþykkja frumvarpsdrögin eða hafna? Það verður spurningin. Frummælendur eru Páll Þórhallsson formaður Stjórnarskrárnefndar Forsætisráðuneytisins, Katrín Oddsdóttir formaður Stjórnarskrárfélagsins og Sigurður Haraldsson fulltrúi Dögunar stjórnmálasamtaka. Fulltrúar Samfylkingar (Valgerður), Vinstri grænna (NN), Pírata (Birgitta), Bjartrar Framtíðar (Robert), Sjálfstæðisflokks (Birgir Ármanns.) hafa boðað komu sína formlega. Framsóknarflokkur hefur ekki gefið ákveðin svör ennþá. \"Öllum má vera ljóst að hér er um mikið hitamál að ræða, mikil átök voru um stjórnarskrána á síðasta kjörtímabili og mjög sennilegt að svo verði um frumvarpsdrögin þrjú. Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn og nota tækifærið til að upplýsa almenning um skoðanir, bæði þingmanna og fundargesta,\" segir í tilkynnngu frá aðstandendum. |