Fundað í deilunni á föstudag

Fundur í deilu sjómanna og útgerða hefur verið boðaður á föstudag hjá ríkissáttasemjara. Miklar væntingar eru til fundarins þegar sjö vikur eru liðnar af verkfalli.

Ekkert hefur miðað nema ef til vill að grundvöllur sé að samkomulagi um vinnufatakostnað, fjarskiptakostnað og matargreiðslur fyrir sjómenn.

Á Bryggjunni í gær á Hringbraut kom í ljós að viðræður um erfið mál, eins og olíverðviðmið og nýsmíðaákvæði og einhvers konar bætur fyrir missi á sjómannaafslætti, eru í gangi í samningsumhverfi þar sem traust sjómanna til útgerðarmanna er lítið sem ekkert.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, eins af aðildarfélögum Sjómannasambandins, sagði sjómenn tortryggja útgerðir vegna verðlagningar á fiski til vinnsla í þeirra eigu. Áður en það mál verði dregið betur upp á borðið er ekki traust á milli manna, sagði Vilhjálmur í Bryggjuþættinum í gær.