Fundað í dag vegna kjaradeilu

Í dag verður fundað áfram í kjara­deilu VR, Efl­ing­ar, Verka­lýðsfé­lags Akra­ness, Verka­lýðsfé­lags Grinda­vík­ur, Lands­sam­bands ís­lenskra verzl­un­ar­manna og Fram­sýn­ar við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins í húsa­kynn­um rík­is­sátta­semj­ara. Fundurinn hófst klukkan 10:00 og mun standa fram til klukkan 17:00. Mbl.is greinir frá.

Í gær var fundi slitið fyrr en áætlað var vegna stöðu WOW air. Á honum treysti SA sér ekki til að leggja fram tölur varðandi launaliðinn vegna óvissu í tengslum við WOW. „Við vor­um að meta stöðuna aðeins í gær og ætl­um að ræða sam­an núna á eft­ir. Svo sjá­um við bara til hvernig það fer,“ seg­ir Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formaður VR, í sam­tali við Mbl.is.

Hann segir það jákvætt að deiluaðilar séu að ræða saman og að þeir hyggist halda því áfram.