Fullnaðarsigur stundarinnar og reykjavík media

Hæstiréttur kvað upp dóm í morgun í máli Glitnis HoldCo ehf. gegn Stundinni og Reykjavík Media vegna lögbanns á umfjöllun sem byggði á gögnum úr þrotabúi Glitnis. Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar og áður héraðsdóms um að lögbann sem Sýslumaðurinn í Reykjavík setti á umfjöllunina hafi verið ólögmætt. Stundin og Reykjavík Media hafa því unnið fullnaðarsigur, enda nú unnið málið á öllum þremur dómstigum.

Glitnir HoldCo ehf. höfðaði mál gegn Stundinni og Reykjavík Media vegna umfjöllunar sem byggði á gögnum úr þrotabúi Glitnis, þar á meðal um viðskipti Bjarna Benediktssonar fyrir hrun. Sýslumaðurinn í Reykjavík setti lögbann á umfjöllunina að beiðni Glitnis HoldCo.

Lögbannið var upphaflega sett á af Sýslumanninum þann 13. október 2017. Héraðsdómur úrskurðaði það ólögmætt 2. febrúar 2018 og Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu þann 5. október 2018.