Fullkomnasti flughermir í heimi

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld (ath. breyttan útsendingartíma) en þá er á dagskrá síðari hluti heimsóknar í þjálfunarsetur Icelandair við Flugvelli í Hafnarfirði.  Rætt verður við Guðmund Örn Gunnarsson framkv.stjóra Tru Flight Training Iceland, en það fyrirtæki er að hluta í eigu Icelandair og rekur nýja flugherminn sem settur var upp um þarsíðustu áramót.  Um er að ræða risavaxna fjárfestingu enda kemur fram í þættinum að hermirinn sé sá fullkomnasti í heimi hvað varðarkennslu á Boeing 757 þotur.  Farið verður í flugferð á herminum með nýráðnum flugmönnum Icelandair og m.a. lent á Akureyrarflugvelli.  Auk þess rætt við þjálfunarflugstjóra um þjálfun flugmanna og önnur atriði sem koma flugherminum við.  Umsjónarmaður þáttarins er Sigurður K. Kolbeinsson og kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.

Hér má sjá fyrri hluta úr sömu þáttaröð Atvinnulífsins, en athugið að þátturinn er sýndur á nýjum sýningartíma: Kl.22 á þriðjudagskvöldum.