Þingmennirnir Birgir Ármannsson og Róbert Marshall eiga báðir sæti í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Þeir verða í Þjóðbraut í kvöld.
Talað verður um Reykjavíkurflugvöll og hvað beri að gera varðandi hann. Þar eru þeir fullkomlega ósammála. Róbert segir vald til að ákvarða framtíð flugvallarins vera hjá réttkjörinni borgarstjórn Reykjavíkur, og hvergi annarsstaðar.
Birgir segir að ef í nauðirnar rekur verði Alþingi að svipta borgaryfirvöld skipulagsvaldinu.
Birgir og Róbert verða í Þjóðbraut í kvöld klukkan 21:40.