22 frumvörp voru orðin að lögum þegar síðasta þingfundi fyrir jól lauk á laugardag, samkvæmt þingmálalista á vef Alþingis. Sjö laganna voru borin fram af fjármála- og efnahagsráðherra, þeirra á meðal fjárlög, fjáraukalög og tengd efni. Einnig lög um opinber fjármál sem mynda eiga ramma um ríkisútgjöld. Fimm frumvörp innanríkisráðherra urðu að lögum, þar á meðal um verkefni Landhelgisgæslunnar erlendis og innleiðingar á ákvæðum tveggja alþjóðasamninga.
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna, var eini þingmaðurinn sem náði frumvarpi í gegn. Það voru lög um að sanngirnisbætur skyldu greiddar vegna brota sem börn urðu fyrir í Landakotsskóla.
Engin lög komu frá fjórum ráðherrum fyrir áramót. Það eru forsætisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Af þeim var iðnaðar- og viðskiptaráðherra sá eini sem lagði ekkert frumvarp fram frá því þing kom saman í haust.