Frumvarp heilbrigðisráðherra fordæmt:

Hætta er á að einkum tekjulágir fresti því að leita til læknis til að láta athuga með krabbamein. Þetta segja krabbameinsssamtök í umsögn um frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur ályktað vegna frumvarps ráðherra til breytinga á lögum um sjúkratryggingar sem kveður á um nýtt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu.

\"Félaginu finnst full ástæða til að lýsa yfir þungum áhyggjum vegna þessara breytinga. Þó svokallað þak á greiðslu sé gott og gilt þá er ljóst að greiðsluþátttaka einstaklinga á grunnþjónustu mun hækka töluvert og ekki síst fyrir þá sem þurfa grunnrannsóknir krabbameinsgreininga. Aukin hætta mun skapast á því að fólk fresti krabbameinsrannsóknum og fleiri kostnaðarsömum heimsóknum til sérfræðinga. Greiningum krabbameina má alls ekki skjóta á frest en hættan er sú að fólk dragi það að leita eftir þeirri þjónustu, þegar kostnaður kemur til með að aukast verulega,\" segir í þungorðri ályktun samtakanna.

\"Við skorum á stjórnvöld að endurskoða þessar fyrirhuguðu hækkanir á gjaldskrám sem koma til með að fylgja þessum breytingum.\"