Frumvarp eyglóar hækkar leiguverð!

Verði húsnæðisbótafrumvarp Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, að lögum munu vanskil á leigu til Félagsbústaða aukast verulega og leiguverð hjá félaginu hækka.
 
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn Félagsbústaða um frumvarp ráðherra - og fjallar er um á ruv.is í dag. Frumvarpið var sem kunnugt er lagt var fram á Alþingi í sumar og var hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir kjarasamningum á almennum markaði. Frumvarpið hefur verið umdeilt - meðal annars hefur fjármálaráðuneytið gert veigamiklar athugasemdir við það, svo mjög reyndar að það skarst í odda á milli húsnæðis- og fjármálaráðherra.
 

Félagsbústaðir eiga um 2.000 íbúðir og herbergi í Reykjavík. Í umsögn félagsins við frumvarpið segir að þeir sem leigi hjá félaginu undirrita skriflega beiðni þar sem þess er óskað að húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur séu greiddar til Félagsbústaða. Í frumvarpi Eyglóar er kveðið á um óheimilt verði að framselja húsnæðisbætur á þennan hátt.

Félagsbústaðir segir í umsögn sinni að þetta verði til þess að vanskil á leigu til félagsins muni aukast - komi til taps vegna slakrar innheimtu verði að bæta það upp með hækkun leiguverðs. Þá er á það bent að ef félagið geti ekki gengið að húsnæðisbótum vísum muni lánskjör félagsins versna sem leiði af sér hækkun kostnaðar og leigu.

Félagsbústaðir telja, að því er fram kemur í frétt ruv.is um málið í morgun, breytinguna ekki til þess fallna að auka gagnsæi í velferðarkerfinu - hætta sé á að bótum sem ætlaðar eru til að uppfylla húsnæðisþörf leigutaka verði varið til annarra þarfa eða langana.