Frumsýnt myndband: bjarni ben í nærmynd

Í þætti Sjálfstæðisflokksins, Á réttri leið, verður frumsýnd nokkurra mínútna myndband með Bjarna Benediktssyni, formanni flokksins. Í nærmynd. Að sögn Bjarna má lýsa myndbandinu sem ,,degi í lífi stjórnmálamanns” og því mun myndbandið án efa vekja athygli. Þáttur kvöldsins er síðasti þáttur Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar, en stjórnmálaflokkar hafa staðið fyrir kosningaþáttum á Hringbraut í október. Umsjónarmaður þáttarins er Rósa Guðbjartsdóttir, sem segir að í þættinum sé farið yfir árangurinn sem flokkurinn hefur náð á kjörtímabilinu og mikilvægi þess að halda áfram á sömu braut. Um þessi mál, stjórnun efnahagsmála, málefnin sem hæst hefur borið í aðdraganda kosninga, framtíðarsýnina og fleira ræðir hún við Bjarna. Þá ræða þau einnig þann loforðaflaum sem þau segja stjórnaandstöðuna standa fyrir.

Þátturinn er á dagskrá kl 22.00 og endursýndur á morgun fimmtudag, föstudag og laugardag.

Hér er sýnishorn úr þættinum, þar sem Bjarni ræðir um árangur Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu.