Það má ekkert endilega búast við fjölmenni í kvöld þegar ný heimildarmynd Maríu Guðmundsdóttur ljósmyndara og fyrrverandi alheimsfegurðardrottningar um lífið við ysta veg verður frumsýnd í Árneshreppi í kvöld.
Hreppurinn á Ströndum norður er sá afskekktasti og fámennasti á Íslandi, en til marks um það er að einungis sex krakkar eru í grunnskóla hreppsins að Finnbogastöðum í Trékyllisvík, einn strákur og fimm stelpur. Innan við 50 manns hafa vetursetu í gömlu Víkursveitinni eins og Árrneshreppur hefur á stundum verið kallaður eftir búsældarlegasta hluta hans milli Norðurfjarðar og Reykjarfjarðar.
María, sem á ættir sínar að rekja norður á Strandir, hefur unnið að mynd sinni siðustu fjögur ár í samvinnu við Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og handritshöfundinn Önnu Dís Ólafsdóttur, en sú síðastnefnda segir í samtali við Morgunblaðið í dag að myndin sé samsett úr stuttum aðskildum smásögum um álagabletti og huldufólk, æðardún og innilokun og annað það sem innansveitarfólki liggi á hjarta.
Myndin verður frumsýnd í félagsheimili Árneshreppsbúa klukkan 20.00 í kvöld, en sýningar á henni eru áætlaðar síðar í Reykjavík.