Í Ferðalaginu í kvöld:
Það er tekið að vora og æ fleiri huga að gönguferðum upp um fjöll og firnindi. Og það minnir okkur á nýstárlegt samstarf Ferðafélags Íslands og Rauða krossins sem nú er að hefjast, en því er ætlað að kynna nágrannafjöll borgarinnar fyrir nýjustu íbúum landsins, svo sem flóttafólki og öðrum útlendingum sem eru nýfluttir til landsins – og hvað getur svona verkefni kallast anna en gestir og gangandi. Sigmundur Ernir hitti félaga sinn, fjallamanninn Róbert Marshall úti í blíðunni.
Ferðamenn elda íslenskt
The Tin Can Factory er frumlegt menningarfyrirtæki í austurbænum sem kennir ferðamönnum íslenska matseld og íslenska menningu í gegnum mat og drykk. Við förum í Borgartúnið þar sem var einu sinni t.d. dósaverksmiðja – sem skýrir nafnið – en þar ræður ríkjum Gígja Svavarsdóttir sem hefur verið tungumálakennari í yfir þrjá áratugi. Linda hittir hana.
Skattahækkanir á ferðaþjónustu
Ríkisstjórnin hefur boðað að ferðaþjónustan muni færast úr neðra þrepi í það efra. Efra þrepið er núna 24 prósent en á svo að lækka um þarnæstu áramót í 22,5. Vaskur innan ferðaþjónustunnar fer því úr 11 prósentum í 22,5 prósenta þrepið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála segir að stjórnvöld hafi lengi stefnt að því að einfalda skattþrep með því að afnema undanþágur. Ekki séu lengur rök fyrir því að stærsti atvinnuvegur landsins sé á sérstökum undanþágum varðandi virðisaukaskatt. Rætt er við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Gróður fyrir fólk
Þá út í íslenska náttúru sem mikilvægt er að skila til næstu kynslóða eins og við fengum hana frá okkar forfeðrum. Samtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs fagna 20 ára afmæli núna í byrjun apríl, en þau hafa unnið þrekvirki við að græða upp örfoka land í kringum höfuðborgarsvæðið, svo öll náttúruparadísin á Reykjanesskaganum fái notið sín betur. Sigmundur Ernir hitti einn af forkólfum samtakanna, Björn Guðbrand Jónssson, uppi við Elliðaárvatn og grennslaðist fyrir um sögu og sérstöðu þeirra.
Ferðalagið er á dagskrá kl.20 til 21 og svo endursýnt - einnig á sjónvarpsflakkaranum.
Umsjón: Sigmundur Ernir og Linda Blöndal