Frumherji skemmtanabransans í mannamáli

Veitingamaðurinn Ólafur Laufdal sest í gráa stólinn hjá Sigmundi Erni í kvöld í þætti hans Mannamáli og rifjar upp árin sín öll í skemmtanabransanum og síðar meir í fjörlegri ferðaþjónustunni.

Enda þótt lítillæti og hógværð einkenni manneskjuna Óla Laufdal eru afrek hans í atvinnulífinu með ólíkindum, en hann innleiddi algerlega nýja og áður ókunna siði í skemmtanalífi landsmanna á áttunda og níunda áratug síðustu aldar þegar diskóið og glimmerið hélt innreið sína á eyjunni bláu. Þar á undan hafði Óli getið sér gott orð sem einn helsti og vinsælasti þjónninn í Glaumbæ, hvar hann hitti konu sína, Kristínu Ketilsdóttur, en festarveisla þeirra á þessum rómaða skemmtistað var sú síðasta áður en húsið brann.

Þaðan lá leið Óla á Óðal, sem þá var glæsilegasta öldurhús bæjarins, en nokkru síðar tók hann yfir skemmtistaðinn Sesar í Ármúla sem gekk ekkert s´æerstaklega vel og innréttaði hann allan upp á nýtt með speglum, diskókúlum og ljósagólfi, hvar sjónvörp voru á hverjum bar sem þá var alger nýlunda hér á landi. Hollywood varð til og diskósprengjan sprakk með látum á Íslandi og tími fjörlegasta kafla í skemmtanalífi þjoðarinnar var runninn upp með stútfullum diskóböllum fram á rauða nótt.

Óli hefur aldrei getað setið kjurr, enda stofnaði hann hvern risastóra skemmtistaðinn af öðrum á níunda áratugnum, jafnvel þá stærstu í Evrópu svo eftir var tekið út um álfur, en að afloknum þeim kafla í lífinu söðlaði hann um og hóf að móta ferðaþjónustufyrirtæki sitt að Grímsborgum sem nú rúmar 200 manns - og sem fyrr er karlinn hvergi hættur í uppbyggingunni þótt kominn sé á áttræðisaldur.

Vinnu- og reglusemi hefur einkennt Óla alla tíð eins og vel kemur fram í einlægu og skemmtilegu samtali þeirra Sigmundar Ernis í kvöld, en hann hefur ekkert drukkið á Íslandi á seinni árum og fær sér í mesta lagi einn og einn bjór í útlöndum ef konan hans nær að draga hann þangað, en best líður honum innan um kúnnann sinn heima á Íslandi sem fyrr, allsgáður og iðinn við kolann: \"Ég þoli ekki timburmenn og hef aldrei gert og drekk því ekki dropa hér heima þar sem vinnan á hug minn allan,\" segir þessi virtasti og flínkasti  veitingamaður landsins sem byrjaði sem kokkur til sjós, aðeins fjórtán ára gamall og var þá strax kominn upp á einn og kvart hlut, meira en margar karlarnir um borð, enda teningunum þá þegar kastað.

Mannamál eru frumsýnd klukkan 20:15 í kvöld.