Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er meðal þeirra sem minnast Bjarna Valgeirs Guðmundssonar forsetabílstjóra. Hann lést á Landakoti þann 19. febrúar síðastliðinn, 85 ára að aldri. Bjarni hóf störf hjá forsetaembættinu árið 1980 og starfaði þar til starfsloka.
„Það er einatt lán að eignast góða vini meðal samstarfsmanna. Bjarni V. Guðmundsson var umsjónarmaður og bílstjóri á höfuðbólinu á Bessastöðum í tíð okkar mæðgna, nágranni okkar á Álftanesinu á Jörfa, hinum megin við Bessastaðatjörn, og við eigum um hann svo afar góðar minningar,“ segir Vigdís í minningargrein sem birt er í Morgunblaðinu í dag.
Bjarni ólst upp í Skagafirði en flutti til Reykjavíkur árið 1951 þar sem hann lauk námi í bifvélavirkjun. Hann starfaði við greinina í 23 ár, eða allt til ársins 1980 að hann hóf störf hjá embætti forseta.
„Hann sinnti með ráðskonu staðarins innkaupum til heimilisins, ók heimasætunni í barnaskólann á Álftanesi og kenndi henni að keyra bíl úti í Bessastaðanesi þar sem engin var umferðin önnur en æðarfugl og stokkendur á vappi. Það voru oft skemmtilegar skrafstundir á háu kollunum við stóra framreiðsluborðið í gamla eldhúsinu á Bessastöðum og margar minnisverðar ferðir farnar í heimsóknir út á land, þar sem Bjarni oftar en ella ók staðarjeppanum með áfastri kerru sem hlaðin var trjáplöntum til gróðursetningar á landsbyggðinni. Skógur á hjólum,“ segir Vigdís.
„Hann var viðræðugóður og glaðsinna og þar á ofan afar tónhneigður, söng lengi í kirkjukórnum okkar á nesinu og spilaði prýðisvel á harmonikku dillandi polka og ræla heimamönnum til mikillar ánægju. Ég minnist Bjarna á Jörfa, samstarfsmanns míns um árabil, með mikilli hlýju,“ segir Vigdís.
Bjarni ræddi starfið stuttlega í viðtali við DV árið 1996 en þá hafði hann verið forsetabílstjóri í 16 ár. Það ár lét Vigdís einmitt af embætti og Ólafur Ragnar Grímsson tók við. Í viðtalinu sagði hann að starf ökumanns forsetans væri fjölbreytt og snerist um meira en akstur með forsetann.
„Ég ók fyrst fyrir Kristján Eldjárn síðustu mánuði hans í embætti forseta og síðan hef ég ekið með Vigdísi alla tíð síðan hún tók við fyrir 16 árum. Ég mun vissulega koma til með að sakna hennar en um leið leggst það vel í mig að aka nýjum forseta okkar, Ólafi Ragnari Grímssyni,“ sagði Bjarni sumarið 1996 en þá hitti blaðamaður á hann á Þórshöfn þar sem hann ók Vigdísi milli staða í þorpinu.
Útför Bjarna var gerð frá Bessastaðakirkju 2. mars síðastliðinn.