Frostið herðir fram yfir helgi

Hitastigið á landinu bláa lækkar eftir því sem líður á næstu helgi og má búast við þónokkru frosti víðast hvar á landinu um næstu helgi og í upphafi næstu vinnuviku. Hafi landsmenn vonað að vorið væri á næsta leiti er ljóst að veruleiki þeirra er og verður annar; það er ekki nóg að þreyja þorrann og góuna þennan veturinn heldur kannski Einmánuðinn sjálfan sem samkvæmt gamla tímatalinu er síðastur vetrarmánaða áður en harpa færir landsmönnum sól og yl í kroppinn. Hiti verður við frostmark í dag og á morgun en fer að læða sér undir núllið um miðja helgina og fellur svo niður í tíu gráðu stirðning og freða þegar heilsa sjálfri páskavikunni. Það er því útlit fyrir snemmbúið páskahret þetta árið sem er svo sem í anda vetrarins því hvassviðri og snjókoma fylgja þessu tíðarfari næstu daga.