Frostið herðir enn út vikuna

Búist er við stormi á Vestfjörðum og á suðaustanverðu landinu í dag að því er fram kemur í viðvörun frá veðurstofu Íslands í dag. Vindur slær hæglega upp í 25 m/s á þessum slóðum í dag.

Sannkallað vetrarveður er nú á landinu, snjókoma og éljagangur mjög víða og frost allt að 10 gráður. Það verður allhvöss eða hvöss norðaustanátt fram á kvöldið, en heldur dregur úr henni á morgun og má þá búast við bjartviðri sunnanlands.

Útlit er fyrir að frostið herði enn frekar þegar líða tekur á vikuna, fari í minnst 15 gráður í innsveitum norðanlands á miðvikudag og fimmtudag.

Og er þá bara að þreyja Þorrann.