Aðalfundur SÁÁ verður haldinn 30. júní næstkomandi og hafa tveir aðilar gefið það út að þeir sækist eftir formannskjöri, Einar Hermannson og Þórarinn Tyrfingsson.
Í morgun barst fjölmiðlum yfirlýsing frá starfsmönnum meðferðarsviðs SÁÁ þar sem starfsmenn vildu koma því á framfæri að þau vildu ekki Þórarinn Tyrfingsson sem formann SÁÁ aftur. Undir yfirlýsinguna skrifa 57 starfsmenn meðferðarsviðs SÁÁ sem er meirihluti starfsfólks alls og mikill meirihluti meðferðarsviðs.
Frosti Logason, útvarpsmaður á X-inu 977 og dagskrágerðamaður tekur í sama streng en hann birti færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann lýsir yfir stuðning við Einar Hermannsson.
„Nú er mikilvægt að allir þeir sem bera taugar til SÁÁ láti til sín taka á næsta aðalfundi samtakanna sem haldin verður á Hotel Nordica þriðjudaginn 30. júní klukkan 17:00.
Þar mun fara fram alsherjar uppgjör andstæðra sjónarmiða um framtíð SÁÁ.
Ég mun að sjálfsögðu styðja Einar Hermannsson í þessari baráttu," segir Frosti.
Í yfirlýsingu frá starfsmönnum segir meðal annars:
„Nú hefur Þórarinn Tyrfingsson boðið sig fram til formanns SÁÁ að nýju. Að hans mati getur enginn nema hann bjargað SÁÁ og kveðið niður þann óróleika sem hann telur að eigi sér stað í starfi samtakanna. Óróleika sem hefur að miklu leyti skapast af hans eigin völdum. Þórarinn hefur unnið ötullega að því að reyna skapa úlfúð og missætti milli starfsstétta og hans handbragð var auðþekkjanlegt á öllum gjörðum framkvæmdarstjórnar sem leiddu til vantraustsyfirlýsingar starfsfólks meðferðarsviðs á formann SÁÁ og framkvæmdarstjórn í apríl síðastliðinn."
Þá lýsir starfsfólkið yfir ánægju sinni með störf Valgerðar Rúnarsdóttur sem tók við störfum af Þórarni og lýsir yfir stuðning við Einar Hermannson til að leiða SÁÁ áfram inn í nýja tíma