„Sigríður og Brynjar eru fólk með mótþróa og spili ekki í takt, Sjálfstæðismenn bar ekki gæfa að velja þetta frambærilega fólk,“ sagði Frosti Logason, útvarpsmaður, í þættinum Harmageddon á Xinu í morgun.
Fjörugar umræður voru á milli þeirra Frosta og Mána Péturssonar í byrjun þáttarins í morgun þar sem þeir fóru yfir tíðindi helgarinnar þar sem bæði Brynjari Níelssyni og Sigríði Andersen var hafnað í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Máni sagði að það væri verið að Samfylkingarvæða flokkinn. Frosti tók undir það og sagði:
„Með því að hafna þessu fólki þá eru þeir að skíta í rjómann, það verður að segjast alveg eins og er. Brynjar fær svosem ágætiskosningu, fimmta sætið sem þýðir þriðja sætið á lista. Hann þiggur það ekki,“ sagði Frosti.
Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti listans, hefur hvatt Brynjar til að endurskoða afstöðu sína. Máni segir það ekki koma á óvart. „Það er búið að níðast á lítilmagnanum Sigríði Andersen, síðan er búið að henda út Brynjari líka. Gulli fattar það alveg og hugsar „þetta er ekki gott.“ Hann veit að þetta getur þýtt eitthvað.“
Máni segir að hann sé ánægður með að Hildur Sverrisdóttir hafi fengið fjórða sætið. Frosti ekki jafn hrifinn. „Hún er svona fín, la la. Hún verður aldrei neitt Brynjar Níelsson.“
Máni segir að það hafi verið fagnað hjá RÚV. „Það var tekið upp kampavínið í Efstaleitinu. Stiginn stríðsdansinn og kallað „Við erum ekki að fara af auglýsingamarkaði! Við erum ekki að fara af auglýsingamarkaði!“ Þau vissu það að þarna er komið fólk sem er ekkert burðugt í svoleiðis bardaga.“
Máni kemur svo Sigríði til varnar:
„Það kemur mér ekkert á óvart að minnsta stelpan í bekknum, henni hafi bara verið hent fyrir rútuna í Landsréttarmálinu. Svo sér maður einhverjar mannvitsbrekkur á Twitter sem eru bara: „Búið að losna við Sigríði Andersen og Brynjar Níelsson, það eru bara jólin núna!!“ Þetta eru svo miklir hálfvitar.“ Sagði Máni það fráleitt að Sigríður hafi ein tekið ákvörðun í Landsréttarmálinu á sínum tíma. „Hélt einhver að hún hefði bara fundið þetta upp sjálf? Heldurðu að hún hafi ekki fengið skipun frá flokknum um þetta?“