Frosti Loga: „Ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar“

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason segir misskilning gæta hjá fólki sem ekki þekki til hans mála og að misskilningur sé kominn til vegna fyrirsagna fjölmiðla í kjölfar yfirlýsingar hans í mars í fyrra eftir að fyrrverandi kærasta hans steig fram í viðtali í hlaðvarpinu Eigin konur.

Fréttablaðið greinir frá.

Frosti hefur verið mikið í umræðunni síðastliðið ár eftir að fyrrverandi kærasta hans steig fram í viðtali í hlaðvarpinu Eigin konur sem birtist á Stundinni í mars í fyrra. Þau áttu í sambandi á árunum 2009 til 2012.

Meðal þess sem fyrrverandi kærasta Frosta greindi frá var að hún hefði lifað í stöðugum ótta um að hann myndi láta verða af hótunum um að dreifa kynferðislegum myndböndum af henni. Myndböndin hafi hann tekið upp án hennar vitundar á meðan þau voru enn saman. Í kjölfarið sendi Frosti frá sér tilkynningu á Facebook, þar sem hann sagðist taka fulla ábyrgð á sinni hegðun og ekki rengja hennar upplifun.

Nú stígur Frosti fram til að leiðrétta þann misskilnings sem hann segist hafa skapast vegna fyrirsagna fjölmiðla í mars í fyrra. Einhverjir fjölmiðlar hafi jafnvel gengið svo langt að segja að hann hefði gengist við ásökunum Eddu Pétursdóttur.

„Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda. Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk,“ segir Frosti í færslu sinni nú.

Færslu Frosta má lesa í heild sinni hér að neðan.