Frosti Loga og Hannes á fundi: „Kvöld­stund með meistaranum“

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason birti nú fyrir skömmu mynd af sér Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Á myndinni má sjá þá félaga sitja að sumbli á huggulegum stað í hjarta borgarinnar og yfirskrift færslunnar er „kvöldstund með meistaranum.“

Stutt er síðan að Frosti fór í ótímabundið leyfi frá störfum sínum sem dagskrárgerðar- og fjölmiðlamaður á Stöð 2, í kjölfar ásakanna um andlegt ofbeldi í nánu sambandi. Í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur greindi Edda Pétursdóttir, fyrrverandi kærasta Frosta, meðal annars frá því Frosti hafi hótað að dreifa viðkvæmu myndefni af henni, sem tekið var án hennar vitundar. Skömmu eftir þáttinn steig Frosti fram gekkst við ásökunum sem bornar voru á hann og sagðist munu taka fulla ábyrgð á hegðun sinni.