Almennt séð er pólitíkusunum á Íslandi slétt sama um láglaunakonuna og kjör hennar - og vel að merkja, þetta á líka við um femínistana og allar vel klæddu talskonur jafnlaunavottunarinnar í landinu. Þetta kom fram í þættinum ritstjórarnir á Hringbraut þar sem þeir Harmageddonbræður voru gestir, þeir Frosti Logason og Máni Pétursson
Máni tón fram að Þorsteinn Víglundsson hefði mætt í þátt þeirra til að ræða laun láglaunakonunnar.
„Það er ekki bara flótti hjá stjórnmálamönnum. Hinir gallhörðustu femínistar sem eru mikið og oft í samfélagsumræðunni og gert landinu gott, þeir virðast alveg sitja hljóðir þegar kemur að láglaunakonunni. Það virðist ekki vera mikið pláss fyrir hana í fjölmiðlum.“
Frosti bætti við: „Kjör láglaunakonunnar virðist ekki vera femínskt mál. Bara alls ekki. Femínistum er alveg slétt sama um kjör láglaunakonunnar.“
Þá benti Sigmundur Ernir á að Dagur B. Eggertsson, Þórdís Lóa né Líf Magneudóttir kæmu fram fyrir hönd borgarinnar þegar verið er að tala um kjör láglaunakonunnar, heldur eingöngu upplýsingafulltrúi borgarinnar. Máni svaraði:
„Það var pólitísk ákvörðun að setja á jafnlaunavottun, sem var aðallega fyrir konur í drögtum og fínum störfum sem þurftu að fá sömu laun og kallarnir, sem er gott og gjaldavert. Þegar kemur að þessu er enginn tilbúinn að koma og taka þátt í partýinu, sýna og þora og fara í þetta.“
Þá sagði Máni á öðrum stað að eini stjórnmálamaðurinn í borginni sem hefði látið sig láglaunakonuna varða væri Dóra Björt hjá Pírötum: „Við erum með hóp láglaunakvenna sem geta ekki lifað á launum sínum. Það er einfalt reikningsdæmi sem hefur verið lagt fram. Það er enginn stjórnmálamaður sem kemur fram og segir:
„Ég er í liði með þessum konum. Ég vil leiðrétta hlut þeirra og þær fái mannsæmandi laun. Það hefur enginn sagt þetta.“