„Vonandi verður skemmtilegt fyrir Bjarna að ferðast til Kína. Það er hins vegar alveg óvíst hvort hann á þangað nokkurt erindi því Alþingi hefur ekki staðfest samþykktir bankans og án þess verðum við ekki aðilar. Samþykktir bankans krefjast nefnilega undanþágu bankans og starfsmanna hans frá sköttum, undanþágu frá fjármálaeftirliti og í raun verður þessi banki hafinn yfir lög og reglur Íslands. Slík fríðindi getur enginn samþykkt án heimildar Alþingis,“ skrifar Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarlokksins í færslu á facebook.
Þar tengir hann við frétt mbl.is þar sem vitnað er í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu þar sem segir að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sé í dag á stofnfundi Innviðafjárfestingabanka Asíu. Á fundinum verði bankinn formlega stofnsettur, samþykktar verða helstu reglur um starfsemi bankans og fyrsta stjórn hans kjörin.
Ríkisstjórnin hafi í mars sl. ákveðið, að tillögu fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, að Ísland myndi sækjast eftir því að vera meðal stofnaðila að Innviðafjárfestingabanka Asíu. Heildarskuldbinding Íslands varðandi stofnfé bankans nemi um 2,3 milljörðum íslenskra króna.
„Hvað fær Ísland svo út úr því að setja 2.3 milljarða í þennan banka sem mun starfa alfarið í Asíu? Aðeins 0,028% hlut í bankanum og auðvitað engin áhrif, engan stjórnarmann. Hlutabréfin má svo ekki selja neinum nema bankanum sjálfum. Það er mjög ólíklegt að þessi fjárfesting skili íslenskum skattgreiðendum nokkru verði hún að veruleika,“ skrifar Frosti.
Hann segist ekki vilja tjá sig nánar um ummæli sín en Bjarni hefur svarað Frosta á facebook og sagt að Alþingi hafi þegar veitt heimild til þeirra skuldbindinga sem aðild Íslands að Innviðafjárfestingabanka Asíu leiðii af sér, í fjáraukalögum fyrir síðasta ár.
Katrín Jakobsdóttir, VG, hefur þó tekið undir gagnrýni Frosta um heimildir Bjarna og félaga frá þinginu, hún dregur þær í efa.
Til þess hefur verið tekið að Frosti leggst einn harðast af þingmönnum stjórnarliðsins gegn því að hlutur Landsbankans verði seldur einkaaðilum á árinu. Bjarni talar mjög fyrir því og er gert ráð fyrir sölu í fjárlagafrumvarpi ársins 2016. Er nú komin upp nýja bankadeila milli þeirra tveggja.
Hringbraut spurði prófessor í stjórnmálafræði í gær hvort hver og einn þingmaður og hvor stjórnarflokkur færi brátt að markera eigin gildi betur þar sem styttist í kosningabaráttuna. Benti prófessorinn, Grétar Þór Eyþórsson, á að þingmeirihluti ríkisstjórnar væri það ríflegur að svigrúm gæfist fyrir „óþekkt“ tiltekinna þingmanna eins og lesa má um hér.