Frost alla fyrstu viku sumars

Sumarbyrjunin er með kuldalegra móti á Íslandi, enda er ekkert annað en frost í kortunum alla fyrstu viku sumars. Norðanbálið er langvinnt og færir ekki einasta allan þennan kaldrana yfir landið hefur og éljagang og snjókomu um mest allt land sem nær á næstu dögum yfir á Suðurlandið. Gaddurinn verður þetta frá 1 gráðu upp undir 10 gráður sem getið hæglega bitið í kinn í því hvassvirði sem fylgir þessu veðurlagi á köflum.


Þessa sér auðvitað stað á þjóðvegum landsins. Á Vesturlandi eru vegir að vísu greiðfærir en hálkublettir eru á Bröttubrekku og á Vatnaleið en snjóþekja er í Svínadal og á Fróðárheiði. Það er snjóþekja á Þröskuldum og á Steingrímsfjarðarheiði, hálka á Gemlufallsheiði en skafrenningur á Klettshálsi. Snjóþekja er Innstrandavegi og þungfært í Árneshreppi. Þá er éljagangur allvíða á Norðurlandi og þar er því víða nokkur hálka eða snjóþekja. Þæfingur er á Fljótsheiði, Hófaskarði, Hálsum, Hólasandi og á Dettifossvegi. Á Austurlandi eru hálkublettir og snjóþekja á Héraði en greiðfært er með ströndinni, snjór er einnig á Fjarðarheiði en hálka á Fagradal og á Oddsskarði. Ófært er á Öxi. Í öðrum landshlutum eru vegir greiðfærir.