Fátt annað en frost er í kortunum næstu daga og jafnvel fimbulkuldi inn til landsins, enda má þar búast við að mælar sýni vel í áttina að 20 stiga gaddi og er þá hætt við að ýfi kalda nös.
Svo langt sem veðurfræðingar sjá er kuldi yfir landinu með hægviðri og heiðríkju oft og tíðum um suðvestanvert landið. Það heldur áfram að snjóa um norðanvert landið í dag, en svo dúrar fram að helgi. Á sunnudag gæti éljað allra syðst.
Það er sumsé útlit fyrir góða útiviistarhelgi víðast hvar á landinu, en vert er að vekja athygli á að færð er sums staðar þung, einkanlega í innsveitum og utan helstu leiða.
Það eru hálkublettir á Hellisheiði, í Þrengslum og nokkuð víða á Suðurlandi en hálka á Mosfellsheiði, Suðurstrandavegi og nokkrum öðrum leiðum. Þæfingsfærð er í Kjósarskarði.
Hálka eða hálkublettir eru á Vesturlandi og sums staðar snjóþekja. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á stöku stað.
Það er snjóþekja eða hálka á vegum í Norðurlandi og éljagangur í Skagafirði og allt austur í Þingeyjarsýslur.
Á Austurlandi er snjóþekja á flestum leiðum en á Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði er enn þungfært eftir nóttina en unnið að hreinsun. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni, allt suður í Öræfi en þar fyrir vestan er mikið autt.