Nýjum miðflokki Emmanuel Macron forseta Frakklands er spáð afar góðu gengi. Fyrri umferð þingkosninga í Frakklandi fór fram í dag og seinni umferð verður næsta sunnudag.
Líkur eru á að flokkurinn fái rúm 30% atkvæða í þessari umferð en þó var kosningaþátttaka lakari en ráð var fyrir gert. Er það sagt vera sökum uppgjafar oddvita þeirra flokka sem etja kappi við nýja flokk Emannuel Macron. Þetta er skýring sem ber að taka með fyrirvara.
Þjóðveldisflokknum er spáð tæpum 20% og Þjóðfylkingunni einum 13%. Sósíalistaflokknum er spáð 9% fylgi en Emmanuel Macron var áður í þeim flokki.
rtá