Franska tímaritið L\Express birti nýverið skoðanakönnun um fylgi framboða í frönsku þingkosningunum. Kosið verður í tveimur lotum. Fyrst á sunnudag hinn 11.júní og svo sunnudag hinn 18.júni. Kosið er í einmenningskjördæmum sem gerir illmögulegt að spá með vissu um hvernig þingsæti skiptast. Á franska þjóðþinginu sitja 577 þingmenn.
Könnun L\'Exrpess er svona: Flokkur Emmanuel Macron forseta \"En Marche!\" sem kalla má á íslensku \"Áfram gakk!\" mælist með 29% fylgi; Franska þjóðfylkingin flokkur Marien Le Pen mælist með 17%; Þjóðveldisflokkurinn mælist með 15% og Vinstri sósíalistar mælist með 14% en oddviti flokksins er Jean-Luc Melenchon.
rtá
Nánar www.lepress.fr
'