Francois holland kveður

Francois Holland kveður á morgun eftir fimm á í embætti forseta Frakklands. Ekkert eitt hefur einkennt forsetatíð sósíalistaleiðtogans sem hófst árið 2012. Hann tók ákvörðun sem ekki á sér fordæmi í sögu fimmta lýðveldisins um að sækjast ekki eftir endurkjöri.

Efnhagsmál og vinnumarkaðsmál eru þeir málaflokkar sem Francois Holland náði ekki að koma í viðunandi horf. Ekkert eitt mál setti mark sitt á forsetatíð Francois Holland.

Forsetinn studdi framboð Emmanuel Macron með ráðum og dáð en Macron var ráðherra í ríkisstjórn Francois Holland þar til Macron á síðasta ári sagði af sér embætti og stofnað málefnahreyfingu sem kölluð var \"Áfram gakk!\" en þá hreyfingu studdist Macron svo við þegar hann bauð sig fram til forseta.

Vald forseta Frakklands hefur orðið miklu meira en forætisráðherrans. Í reynd er stjórn framkvæmdavaldsins í Frakklandi í höndum forsetans og stjórnafarið þar er nú miklu líkara stjórnafarinu í Bandaríkjnum en í þorra ESB ríkja. En undir lok forsetferils síns mátti Francois Holland finna að vinsældir hans og þar með pólitísk áhrif dvínuðu mikið.

Eftir næstu þingkosningar í Frakklandi er líklegt að málefnahreyfing sú sem Emmanuel Macrons stofnaði \"Áfram gakk!\" verði orðin stjórnmálaflokkur. Að franskri fyrirmynd sem merkir aðeins lauslega samtök þingmanna.

Samtök sem í fyrstu styðja Emmanuel Macron forseta en verða aldrei skipulögð eða öguð stjórnmálasamtök. Forsetann verður næstu fimm ár að búa við þetta óheppilega ástand.      

rtá

 

Nánar www.ruv.is  www.mbl.is  www.bbc.com