Um ólöglegt streymi

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar um Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur þingmanna Sjálfstæðisflokksins í leiðara Fréttablaðins í dag.  Áslaug Arna er þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ritari þess flokks frá 2015. Hún var formaður Heimdallar 2011 til 2013.

Kristín segir að yfirvöld bregðist einkareknum fjölmiðlum með sífeldu dekri við Ríkisútvarpið. Andvaraleysi þeirra gagnvart einkareknum fjölmiðlum opinberist með framferði þingmannsins Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.

\"Með líku lagi endurspeglast andvaraleysið í því að formaður Allsherjar - menntamálanefndar Alþingis sem hefur það hlutverk að fjalla um stöðu fjölmiðla, skuli tísta og óska eftir vefslóð að ólöglegu streymi af boxbardaga Conors McGregor og Floyds Mayweather - dagskrárefnis sem Stöð 2 hafði keypt einkarétt á dýrum dómum.\"  

Áslaug Arna  Sigurbjörnsdóttir hefur áður vakið mikla athygli á sér í fjölmiðlum með yfirlýsingum.

\"Ég trúi því að Sjálfstæðismenn sjái til þess að við getum keypt hvítvín með humrinum\" sagði hún hinn 10. mái 2013.

Þá var Áslaug Arna formaður Heimdallar félags í Sjálfstæðisflokknum.

Tilefnið var að Áslaug Arna er ósatt við að verslanir ÁTVR eru lokaðar á sunnudögum.

[email protected]