Fróðlegt að bera saman myndbönd así og sa

Þing ASÍ hófst í dag og óhætt er að setja að kjarasamningar séu mál málanna um þessar mundir. Í þætti Jóns G. í kvöld ber hann saman myndbönd frá ASÍ og SA. Myndband Samtaka atvinnulífsins var gert árið 2015 og sýnir Jón brot úr því. ASÍ gerði sitt myndband snemma á árinu og olli það nokkurru fjaðrafoki á meðal róttækustu liðsmanna verkalýðsfélaganna. Þau eru býsna lík og komast að sömu niðurstöðu; að verja kaupmáttinn.