Tímaritið frjáls verslun hefur valið Árna Odd Þórðarson sem viðskiptafræðing ársins, en Árni Oddur hefur stýrt hátæknifyrirtækinu Marel á undanförnum árum með góðum árangri.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að mikið vatn hafi runnið til sjávar á stjórnartíma Árna. Hann hafi leitt félagið í gegnum miklar breytingar með nýsköpun og framsækni að leiðarljósi.
„Árið 2014 var ár breytinga í rekstri Marel en í upphafi ársins var ákveðið að ráðast í veigamiklar hagræðingaraðgerðir til þess að einfalda og straumlínulaga reksturinn. Hjá félaginu starfa yfir 4.000 manns í yfir 30 löndum en hér á landi starfa um 500 manns. Þó enn sé margt óunnið þá hefur félaginu tekist að breyta miklu í rekstrinum á einu ári og hafa breytingarnar gengið vel og örugglega fyrir sig.
Verksmiðjurnar sem áður voru 19 eru orðnar 14 og það mátti sjá jákvæð merki í uppgjöri ársins 2014. Rekstrarhagnaður jókst ásamt tekjum og hafa markaðsaðilar spáð fyrirtækinu góðu gengi ef fram heldur sem horfir. Nýsköpun félagsins til að nýta afurðir betur ásamt því að nýta orku og vatn á hagkvæman hátt er að skila sér í rekstrinum.“
Árni er með cand. oecon-próf frá háskóla Íslands og MBA-próf frá IMD í Sviss árið 2004. Hann tók við starfi forstjóra Marel síðla árs 2013 en sat þar áður í stjórn félagsins í átta ár, lengst af sem stjórnarformaður. Áður en Árni tók við núverandi starfi var hann forstjóri Eyris Invest og vann þar áður í Búnaðarbankanum.