Samkvæmt nýjum úthlutunarreglum LÍN fyrir námsárið 2019/2020 hækkar frítekjumark námsmanna um 43 prósent og fer úr 930.000 krónur á ári í 1.330.000 krónur. Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir að hækkunin komi til móts við óskir námsmanna sem bent hafa á að frítekjumarkið hafi ekki verið hækkað í takt við verðlagsbreytingar og launahækkanir síðan árið 2014.
Í tilkynningunni segir að í farvatninu sé umfangsmikil kerfisbreyting á fyrirkomulagi LÍN þar sem ráðgert er að nýtt frumvarp um sjóðinn verði lagt fram á Alþingi í haust. Breytingarnar muni m.a. felast í því að námsstyrkur ríkisins verði gagnsærri og meira jafnræði verði meðal námsmanna. Mun nýju kerfi þannig svipa meira til norrænna námsstyrkjakerfa. Stefnt er að því að nýtt stuðningskerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.
Þá kemur fram að námsaðstoðin sem sjóðurinn muni veita verði áfram í formi lána á hagstæðum kjörum og til viðbótar koma til beinar styrkjagreiðslur vegna framfærslu barna og 30 prósent niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma.
Stefnt er að því að bæta fjárhagsstöðu nemenda, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og hvetja nemendur til að klára nám sitt á tilsettum tíma. Í því felist ávinningur fyrir námsmenn sem og þjóðhagslegur ávinningur fyrir samfélagið allt sem útreikningar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 milljörðum króna á ári.