\"Ég held ég sé fyrsti forstöðumaður trúfélags sem fór að tala fyrir því að Siðmennt fengi stöðu á við önnur trúfélög og Fríkirkjan hefur alltaf verið þeim opin,\" segir Hjörtur Magni Jóhannsson, forstöðumaður Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Fossvogskirkja verður lokuð næstu vikur, jafnvel mánuði, en hún hefur verið eina kirkjan á höfuðborgarsvæðinu þar sem trúlausir, þar á meðal félagsmenn Siðmenntar hafa getað staðið að útförum ættingja sinna og vina. Hjörtur Magni bendir á það í Fréttablaðinu í dag að hans kirkja hafi löngum staðið öllu fólki opin, en í næstu viku verður meðal annars útför þar á vegum Siðmenntar.
Samþykkt kirkjuþings um innri málefni Þjóðkirkjunnar tekur fyrir það að veraldlegar athafnir séu haldnar í rými kirkjunnar, en því er Hjörtur Magni ósammála: \"Ég hef fengið heilmikla gagnrýni frá þjóðkirkjuprestum fyrir að hafa leyft slíkar athafnir og fyrir að taka þátt í þeim sjálfur hér í Fríkirkjunni,\" segir hann við blaðið og bætir við: \"Ég er sannfærður um að þjóðkirkjubyggingarnar um allt land eigi að vera öllum opnar því þær eru jú í eigu safnaðanna en þeir fá fjármagn frá ríkinu og þjóðkirkjan er ríkisrekin stofnun. Hún á að vera opin öllum Íslendingum.\"