Erlendir ferðamenn hafa dælt gjaldeyri inn í landið. Áætlað má að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum hafi verið um fmögur hundruð sextíu og sex milljarða króna. Færa má rök fyrir því að þar með hafi ferðaþjónustan rofið þann vítahring sem kjaramál hafa verið í.
Hin hefbundna íslenska leið var að kaupmáttur ykist skamman tíma. Síðan myndi viðskiptahalli aukast. Það leiddi til veikingar krónunnar. Þar með myndi verðbólga fara af stað og éta upp kaupmáttaraukninguna.
Fjölmargir Íslendingar hafa oft upplifað þessa þrónunum. Mergur málsins er þessi: þetta hefur hinsvegar ekki gerst núna.
Á næstu mánuðum verða tæplega fjörutíu kjarasamningar lausir. Læknar eru þegar í viðræðum við ríkið. Samningur lækna við ríkið rennur út eftir einn mánuð.
Í sumar fellur úr gildi gerðadómur átján aðildarfélaga ríkisstarfsmanna. Í haust losna kjarasamningar kennara.
Með úrskurði kjararáðs leiðir hið opinbera enn á ný launastefnu í landinu. Þróun næstu mánuði mun væntanlega leiða í ljós hvort samnináum á almennum vinnumarkaði verður sagt upp eftir ellefu mánuði. Um þetta er skrifað í dag í Viðskiptablaðinu.
Nánar www.vb.is