Friðhelgi diplómata

Vínarsáttmálinn gerir erlenda sendirerindreka nánast ósnertanlega og hefur þessi sáttmáli lagagildi í öllum þeim ríkjum sem hafa fullgilt hann. Sáttmálin hefur því lagagildi á eynni Kúbu.

Bandaríkin hafa ákveðið að á Kúbu sé svo þjarmað að bandarískum stjórnarerindrekum að ekki verði lengur við svo búið. Því verður bandarískum sendiráðsmönnum á Kúbu fækkað um rúman helming.

Sagt er að þeir hafi beðið beðið heilsutjón í kjölfar meints aðkasts þar sem óþekktir gerendur hafi beint eins konar hátíðni hljóðbylgjum að þeim á heimilum þeirra og á vinnustöðum.

Varfærnislegt orðalag er notað að stjórnvöldum bæði á Kúbu og í Bandaríkjunum og því rætt um atvik fremur en árásir. Málið er allt hið torkennilegasta en hefur þó náð að hafa slæm áhrif á samskipti ríkjanna.

Tilgangur reglna Vínarsáttmálans um samskipti ríkja er að tryggja að samkipti ríkja séu með sem greiðasta móti. Reglurnar byggja á langri sögu samskipta ríkja.

Bitur reynsla sýnir að ýmiss konar ofsóknir hafa skaðleg áhrif á samkipti ríkja. Segja má að þessar reglur hafi mótast af veruleika sem er nokkuð fjarri daglegum hversdagleika.

[email protected]