Frið­finnur Freyr látinn

Friðfinnur Freyr Kristinsson, sem leitað hefur verið að undanfarnar vikur, er látinn. Kolbeinn Karl Kristinsson, bróðir Friðfinns, greinir frá þessu á Facebook síðu sinni.

Í færslunni greinir Kolbeinn frá því að Friðfinnur hafi stungið sér út á sjó.

„Við vorum hjá lögreglunni í dag sem hefur tekið saman öll myndbönd sem til eru af Friðfinni daginn örlagaríka og þar í kring,“ segir Kolbeinn í færslu sinni. „Við vitum því nú loksins fyrir víst að sundmaðurinn sjálfur stakk sér til sunds og synti á lignum sjó í fallegu veðri út í algleymið.“

Kolbeinn segir að ekkert saknæmt hafi átt sér stað. Hann segir aðstandendur þakka fyrir þann stuðning sem þau hafa fengið.