Fréttaþulir 200 stöðva í her trumps

Fréttaþulir næstum 200 sjónvarpsstöðva í eigu Sinclair Broadcast Group hafa verið látnir lesa upp yfirlýsingu að undanförnu þar sem lýst er yfir áhyggjum Sinclair af sívaxandi þunga „ábyrgðarlauss, einhliða fréttaflutnings sem dynji á þjóðinni.“

Myndband vefmiðilsins Deadspin af framtakinu fékk víral-dreifingu á netinu um páskana. Viðbrögðin hafa meðal annars verið hörð fordæming fjölmiðlafólks fyrir að fréttamenn Sinclair stöðvanna hafi á þennan hátt verið neyddir í þjónustu við Trump.

Inntak og orðalag herferðar Sinclair gegn „falsfréttum“ þykir minna á reglulegan reiðilestur Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta yfir mörgum af helstu fjölmiðlum Bandaríkjanna, þar á meðal The New York Times, CNN og The Washington Post.

Trump sjálfur steig fram til varnar Sinclair í Twitter yfirlýsingu í morgun þar sem hann sagði fyndið hvernig „falsfréttastöðvarnar, eitthvert óheiðarlegasta fólk sem ég hef átt samskipti við, gagnrýna Sinclair fyrir hlutdrægni.“

Sinclair rekur stærsta net staðbundinna sjónvarpsstöðva í Bandaríkjunum, nær til um 38% heimila og hefur sterka stöðu í þeim ríkjum þar sem Trump nýtur mests stuðnings. Fyrir forsetakosningarnar 2016 var fyrirtækið á sérstökum samningi við framboð Trumps þar sem góðum aðgangi að frambjóðandanum var heitið í skiptum fyrir athugasemdalausa birtingu á viðtölum Sinclair stöðvanna við hann.