Fréttastjóri moggans: órg sitji áfram?

Agnes Bragadóttir, fréttastjóri hjá Morgunblaðinu, gerir því skóna í pistli í blaði dagsins að Ólafur Ragnar Grímsson kunni að hætta við að stíga til hliðar í sumar sem forseti Íslands þegar hann nú sér \"hverskonar kraðak\" hefur myndast í framboðsmálum. Svo kunni að fara að Ólafur Ragnar muni á næstunni stíga fram og segja að hann hafi ákveðið að bjarga þjóðinni frá þeim örlögum að kjósa nýjan forseta sem aðeins nái 10% fylgi.

Agnes telur eins og fram kemur í pistli hennar að enginn þeirra sem lýst hefur áhuga á forsetaembættinu sé spennandi kostur. Hún segir að þeir sem séu að hugsa málið séu ámóta óspennandi, utan Össur Skarphéðinsson sem blaðamaðurinn Agnes telur að gæti orðið góður forseti.

Einn kosturinn við Össur sé að hann geti verið með skemmtilegri mönnum og sé orðinn það gamall að hann myndi ekki sitja lengi á Bessastöðum.