„Öðru vísi mér áður brá verð ég að segja,“ skrifaði Kári Jónasson, fyrrum fréttastjóri Útvarps til langs tíma og síðar yfirmaður á Fréttablaðinu á nýársdag.
Tilefnið er frásögn Fréttastofu Útvarps af sambandsleysi við Lögregluna í Reykjavík á nýársdagsmorgun.
Ber fréttastjórinn gamalkunni og farsæli saman tímana tvenna og ritar á eigin fésbókarvegg: „Hér áður fyrr var það fastur liður að taka viðtal við yfirlögregluþjóninn, Bjarka eða aðra yfirmenn um áramótagleðina. Þeir vöktu þá fram á morgun þar til fréttamaður frá Fréttastofu Útvarps var búinn að taka viðtal við þá, en nú var ekki svarað í neinum símum og engar fréttatilkynningar. Þarna er greinilega eitthvað mikið að, eða hvað segja gamlir fréttahaukar???“
Má af orðum Kára skilja að þjónusta lögregluembættisins á höfuðbrgarsvæðinu sé ekki eins góð og áður.